|
Eitthvað ótrúlega skemmtilegt
|
30.01.2008 22:05:32 / kiddi
Er ekki kominn tími á að menn fari að axla ábyrgð og segi af sér?!?!? Ég ætla að vera góð fyrirmynd fyrir ákveðinn spánverja. Hér með segi ég af mér sem penni á þessu helvítis bloggi, ef blogg mætti kalla. Farið til helvítis
»
04.12.2007 23:02:03 / kiddi
Heyrðu ég veit ekkert hvað ég á að skrifa um.... það eina sem ég geri er að vakna, borða, tek pásu frá því að borða, fer út í skóla að læra, tek pásu frá því að læra, fer að kúka, tek pásu frá því að kúka, held áfram að læra, tek pásu frá því að læra, held áfram að borða, tek pásu frá því að borða, held áfram að kúka, tek pásu frá því, held áfram að læra, tek pásu frá því að læra, held áfram að sofa. Gæti kannski skrifað um rassana á öllu flottu stelpunum sem eru mættar á safnið. Það er nú kannski ekkert mega langur listi, en það er ávallt gaman að ræða um rassa. Þetta er skrýtið hvað það koma alltaf margar flottar stelpur með rassana sína á bókasafnið um prófatíð, nú í kvöld þá er maður búinn að sjá 2 nýjar sem vonandi sjá minn hag (og allra réttsýnna karlmanna) í að halda áfram að mæta á safnið meðan á þessu blessaða prófa stússi stendur. Hvar heldur þetta lið sig eiginlega yfir önnina? Allar að lesa mannfræði eða ferðamálafræði einhver staðar heima hjá sér? Jæja ég nenni þessu ekki lengur, þetta hefði getað orðið miklu betri og lengri færsla ef að maður hefði nennt að leggja einhvern metnað í þetta en ég ætla að fara taka pásu frá því að taka pásu og halda áfram að sofa. Læt samt fylgja með einn Foghorn Leghorn vegna gríðarlegra vinsælda sem sá spéfugl hefur aflað sér á seinustu vikum og árum.
»
26.11.2007 11:32:30 / kiddi
It's official DAVÍÐ ÖRN GUÐNASON lenti í 2.sæti í íslandsmótinu í BJJ (brazilian jiu jitsu) um helgina!  Sjáiði þennan svip!!! Þetta er rosalegt, ég myndi alla vega ekki vilja vera með andlitið á þeim stað sem að gaurinn í dökkbláa gallanum er með það. Nú ætti maður ekki að þurfa að hafa áhyggjur af veseni ef maður fer niðrí bæ með þessum hálf íslenska og hálf brasilíska jiu jitsu kappa. Maður sem að lendir í 2.sæti í íslandsmótinu í BJJ (brazilian jiu jitsu) ætti ekki að vera í vandræðum þegar kemur að þvi að taka svefntak á e-a út úr poppaða ungketti (e.young cats). Ég læt fylgja með eitt stykki Foghorn Leghorn mynd sem ég vill tileinka Davíð.
»
25.11.2007 01:49:49 / kiddi
Jæja nú er alltof stutt síðan að ég bloggaði seinast en hvað
gerir maður ekki fyrir ykkur lesendur. Vegna þess hvað er stutt
síðan þá ætla ég ekkert að hafa þetta of langt, því ég veit að
internet hringurinn hjá fólki getur dregist á langinn. Þó auðvitað
mætti eyða helmingi meiri tíma í að lesa mín frábæru skrif í stað
ruglsins um hvað HR sé góð félagsmiðstöð til dæmis þá nenni ég ekki
að skrifa langa færslu. Þannig að í staðinn fyrir að lesa einhverja
"við erum jafn góð og þið, í alvörunni" sögur þá mæli ég með því að
þið lesið þessa færslu tvisvar.
Litli frændi minn var í heimsókn hérna í dag og mér finnst
svolítið hjákátlegt hvað barnaefni hefur breyst, efni eins og
Latibær, sem að ég vill meina að sé mannskemmandi sýra. Þar er á
ferðinni maður sem elskar að klæða sig eins og fífl, hefur fetish
fyrir dúkkum og á í einhverju vægast sagt skrýtnu sambandi við
stelpu sem er alla vega 20 árum yngri. Ef hún væri 20 árum eldri þá
myndu þættirnir ekki heita Latibær heldur MILF hunter, þess má
einnig geta að það eru einmitt svona menn eins og Sportacus sem að
fréttaþættir eins og Kompás nærast á. Myndir þú hleypa Sportacus
inn á þitt heimili? Líklegt.
Hvar eru allar gömlu góðu teiknimyndirnar sem maður horfði á þegar
maður var lítill, teiknimyndir eins og allar Warner Bros.
teiknimyndirnar, þ.e.a.s. Daffy Duck, Bugs Bunny og fleiri góðir.
Þar var saklausu háðslegu ofbeldi gert hátt undir höfði og ungu
fólki var kennt að litli maðurinn þyrfti ekki alltaf að tapa og
lífið væri eintóm barátta þar sem að þú þyrftir oft að nota
straujárn og sleggjur til að verja þig. Tommi og Jenni til dæmis
áttu alltaf stóran sess í mínu hjarta, ég gat tengt mig vel við
Jenna. Eldri bróðir minn heitir Tómas, kallaður Tommi og ef þú
tekur út tvo stafi og setur inn fimm stafi í nafninu Jenni þá færðu
út Kristinn, þá urðu oft stympingar milli okkar bræðrana eins og
hjá Tómasi og Jens. Hér eru á ferðinni greinileg tengsl sem að hver
sem er getur séð. Þannig að ég mæli með því að fólk fari að láta
börnin sín horfa á þætti þar sem að boðskapurinn er ekki bara að
það sé geðveikt kúl að geta farið í spíkat og búa í
loftbelgjum.
Ég ætla að láta fylgja með teiknimynd með einhverjum mesta
snilling í sögu hins teiknaða heims, hér á ferðinni kjúklingurinn
Foghorn Leghorn sem að fékk aldrei það credit sem hann átti skilið
hjá almenningi. Njótið vel.
Einnig þá setti ég myndir frá ævintýraför míns og Tóta Hauks
til Svíþjóðar en þar heimsóttum við Nonna í Uppsala og Eyjó í
Gautaborg. Of langt mál að fara í þá ferðasögu hér en hún er
epísk skal ég segja ykkur.
bæbæ
»
18.09.2007 22:01:21 / kiddi
Þessi maður er náttúrulega bara meistari! Klárlega mín fyrirmynd í lífinu. Bandaríski leikarinn Bill Murray var á dögunum handtekinn í miðborg Stokkhólms á golfbíl sagði við frumsýningu á nýjust mynd hans, The Darjeeling Limited, að atvikið hafi verið meinlaust spaug. „Lögreglan bað mig um að koma og ræða við sig. Þeir gerðu ráð fyrir því að ég væri drukkinn en ég sagði þeim að það væri eðlilegt enda væri ég kylfingur,“ sagði Murray. Murray tók þátt í Pro/Am móti sem haldið var í tengslum við Skandínavíu-meistaramótið á Evrópumótaröðinni. Eftir að mótinu lauk fékk hann far með golfbíl í veislu. Þegar veislunni var lokið var enginn sem vildi setjast undir stýri á golfbílnum og bauðst Murray til þess að taka það sér. Á leiðinni til baka var hann stöðvaður af lögreglunni. Blóðsýni var tekið af leikaranum en hann neitaði að blása í áfengismæli. Talsmaður lögreglunnar í Stokkhólmi á ekki vona á því að Murray fái fangelsisdóm fyrir brotið en hann gæti átt von á hárri sekt. Svona á að gera þetta krakkar mínir. Ég var að hugsa um að skrif e-ð um diskana hjá Kanye West og 50 Cent eeeenn nei.
»
21.07.2007 02:34:49 / kiddi
»
18.07.2007 21:19:01 / kiddi
Jæja gott fólk þá er maður mættur á svæðið eftir um tveggja
mánaða pásu en eins og fólk man þá var ég búinn að vera fáránlega
duglegur í blogginu og það mun ekkert breytast.
Hérna er smá update á sumrinu.... ég er búinn að vinna hjá bænum
í allt sumar við góðan orðstír. Það eru margir góðir menn og
(einnig dömur) að vinna hjá bænum, nema kannski gaurinn sem er yfir
slættinum. Ég veit ekki alveg hvernig ég myndi lýsa honum en
einhver kallaði hann fjandans hlandpramma. Hann getur tekið sig til
og verið þolanlegur en þess á milli er hann.... eins og áður sagði
(ekki mín orð ) fjandans hlandprammi.
Nú er eitthvað verið að tala um að í þessari viku og þessari viku
aðeins, muni 2 legends úr sláttubransanum mæta í Seljana og slá
fyrir allan peninginn. Við erum að tala um.... beint frá Svíþjóð,
hann JOLLA HÉÐINS. Fyrrverandi þykjustu háskólanema og núverandi
Atvinnumann í knattspyrnu og perraskap hjá GAYS í Gautborg,
spurning hvort hann fái borgað í pulsum. Ha ha ha helvíts
perrinn.
Hinn helmingurinn af þessu tveggja manna sláttuteymi er Gunnar Jarl
Jónsson, fv. starfsmaður B4, leikmaður Leiknis (má nú deila um það
) og núverandi útvarpsstjarna á 101 komma fimm. Þar stendur hann
sig með þvílíku prýði við það að rýna í íslenska knattspyrnu og
einnig stendur hann sig með prýði að koma Sigurbirni Hreiðarssyni á
sporið þegar hann er búinn að babbla og villast í eigin spurningu í
svona 5 mín. Þeir sem vilja mæta á svæðið eru beðnir um að hringja
á undan sér því stólapláss er takmarkað.
Annars þá fór ég einnig til Danmerkur á hina sívinsælu Roskilde
Festival eða eins og við íslendingar þekkjum hana, Hróarskeldu
hátíðina. Fyrir þá sem ekki þekkja, þá er þetta svona eins og
Eyjar, bara skemmtileg. Ha ha ha. Takk fyrir, takk fyrir. Nei segi
svona Eyjar eru fínar...... fyrir heróínfíkla kannski....
hahaha.
En já ég tók nokkrar myndir þar (357 myndir reyndar) og hægt er að
finna þær hér til vinstri. Þær eru reyndar stundum í asnalegri röð
þar sem að tölvan tók þær eitthvað asnalega úr vélinni. En ég segi
fuck it eins og svo oft áður. Njótið vel. Heyrðu þá er þetta bara
komið í bili
Bæ bæ
hérna kemur smá sería frá hátíðinni.








»
23.05.2007 21:42:27 / kiddi
Þá er það orðið opinbert (eins og það hafi ekki löngu verið það ),
Heimir Karlsson veit EKKI NEITT um fótbolta.
»
21.05.2007 00:27:12 / kiddi
Jæja..... þá hefst sumarið opinberlega á morgun, fyrsti
vinnudagurinn mun ganga í garð. Þar sem að ég "vinn úti" þá finnst
mér gaman að þeirri staðreynd að í þessum töluðu orðum þá er
ógeðslega mikið haglél. Þetta þýðir bara.... tvennt, annars vegar
það að ég þarf að hækka hitann i miðstöðinni og hins vegar að
krakkarnir þurfa að koma með hlý föt.
Einnig er gaman að þeirri staðreynda að það er mánuður
síðan að ég bloggaði seinast. Spurning hvað gerist eftir annan
mánuð??? Þið bíðið bara spennt.
»
21.04.2007 16:51:35 / kiddi
Jæja lesendur góðir það er kominn tími á að þig hættið að hlusta
á skít og hlustið á eitthvað af viti. Downloadið þessum disk

Það má einmitt geta þess að þau eru að fara spila á
Roskilde í sumar... það verða ekki leiðinlegir tónleikar.
»
16.04.2007 17:08:44 / kiddi
Nú er verið að tala um það að bærinn Roskilde sé ansi aðlaðandi
dagana 5-8 júlí. Ég veit ekki með ykkur en held það séu mjög mjög
mjög miklar líkur á því að ég heimsæki þennan bæ þá. Heyrst hefur
að æðsti prestur dansflokksins Jón Árni er frábær, hann Jón Árni sé
staðfestur sem ferðafélagi. Nú spyr ég þig kæri lesandi, ætlar þú
að missa af atburði sumarsins dagana 5-8 júlí???



Spurning hvort þessir menn mæti aftur?
»
12.04.2007 01:29:11 / kiddi
Ég var að enda við að horfa á einhverja mestu snilldar kvikmynd
sem ég hef á ævi minni séð. Myndin heitir Zidane, A 21st Century
Portrait. Þessi mynd er sennilega eitt af betri verkum sem ég hef
séð um ævina, hér er verið sýna einn mann spila fótboltaleik í 90
mín.
Myndatakan er ótrúleg, hann er sýndur frá öllum hliðum þannig að
manni finnst maður þekkja hann eða eins og maður viti hvað hann er
að hugsa. Hljóðið í myndinni er einstakt og það hvernig þeir ná að
koma manni inn í hans heim með því að nota umhverfishljóðin er
alveg fáránlega flott, tónlistin, sem er btw eftir Mogwai, er
einnig algjört meistarverk. Það er alveg fáránlegt eins og maður er
búinn að horfa á marga fótboltaleiki um ævina þá upplifir maður
eitthvað svo miklu meira með þessari mynd. Manni líður eins og
maður viti hvað hann er að hugsa og sjái það sem hann sér, jafnvel
þó maður sjái einungis hann 99% af myndinni. Hún vekur upp
furðulegar hugsanir, hugsanir sem maður lætur sér aldrei detta í
hug venjulega yfir fótboltaleik.
Ég get vel ímyndað mér að þeir sem eru ekki miklir fótbolta
áhugamenn eða þeir sem hafa ekki gaman af "öðruvísi" kvikmyndum
eiga erfitt með að finnast þessi mynd góð en þeir mega líka bara
fara til helvítis.
Þessi mynd sýnir líka hvað Zidane gerði fótboltan að miklu
listaverki, hreyfingarnar hjá manninum eru engu líkar og ef manni
langar ekki að fara beint út í fótbolta eftir þessa mynd þá er
eitthvað að. Ég myndi líka segja að ef einhver nær að sannfæra
stelpu um að horfa á þessa mynd sem fyrsta date eða eitthvað álíka,
hann fær klárlega 2 prik í kladdan. Og enn fremur, ef stelpan fílar
myndina þá er hún enn meiri meistari.
Áfram fótbolti
»
11.04.2007 00:41:26 / kiddi
Jæja góðir hálsar þá er sá tími genginn í garð sem alla námsmenn
hryllir við, því jú það er komin apríl og nú þarf að hætta að
skemmta sér um helgar og hafa það leiðinlegt. Kíkja í eina tvær....
alveg upp í sex bækur kannski og læra þangað til maður byrjar að
skíta formúlum og fleiru skemmtilegu. Í tilefni þess að ég mun ekki
vera við ölvun kenndur þangað til 15.maí þá mun ég hafa sett inn
myndir af Aðalfundinum
hjá verkfræðinni og svo föstudeginum langa.
(Folder númer 33 og 34)
Það markverðasta sem gerðist á Aðalfundinum var að Svala borðið
bar höfuð og herðar yfir menn og konur í öllu sem við kemur dólgum
og látum. Einnig unnum við keppnina, hver getur stolið flestum
bjórum...komumst reyndar seinna að því að við vorum einu
keppendurnir.
Svo virðist sem sprottið hafi upp miklar umræður eftir þennan fund
um hvort kjósa ætti stelpur í embætti bara af því að þær eru
stelpur og eru eitthvað minnimáttar eða eitthvað á þá leið...Veit
ekki alveg hvað er í gangi þar. Þeir sem hafa áhuga/ekkert að gera
geta kíkt á bloggið hjá Ernu hér til hliðar og sagt sína skoðun.
Mín persónulega skoðun í þessu máli er að Svala borðið hafi verið
Svalasta borðið...litlu mátti samt muna að það hefði orðið
klofningur innan Svala borðsins á tímabili, en þetta var einmitt á
sama tíma og leikurinn buffaló* stóð sem hæst og einnig þegar við
vorum að rústa "stelu keppninni". En þannig var að Knútur varð afar
óánægður með að enginn á borðinu vildi fá pizzu með skinku heldur
vildu allir pepperoni, . Varð hann þá fokillur og hótaði klofningi
og ætlaði sér að stofna annað borð, svokallað "skinku borð", og ég
held að við getum öll verið sammála því að það hefði ekki verið
nærrum því jafn svalt og Svala borðið. Ástæðan fyrir þessu kasti
hans Knúts má sennilega rekja til þess að hann er afar vinsæll í
Þýskalandi þessa dagana og fær allt upp í hendurnar. En allt fór
vel á endanum og Knútur fékk skinku pizzu og hélt áfram að myndast
óvenjulega illa eins og hann hafði gert allt kvöldið.

Eitt af betri momentum kvöldsins var svo þegar við vorum nærrum
því búnir að fá Ara Ólafsson kosinn í formann Vélarinnar. En þess
má geta að Ari var ekki á svæðinu og heldur ekki meðlimur í
Vélinni. Við sendum Trausta a.k.a Tussi Þruma a.k.a Hrökkbrauð upp
til að halda ræðu því ekki nema þessir helstu vissu hver Trausti
var og auk þess vissi liggur við enginn hvernig Ari leit út. Því
miður tussaðist Trausti til að guggna á þessu og lét vita hver hann
væri.
Eftir þetta var svo barinn opnaður og rauk áfengið út (frítt eins
og venja er) og það sterka kláraðist á nóinu og eftir mikla drykkju
þá var lítið eftir en af einhverri ástæðu voru heilu tonnin af
Breezerum, það var einn maður sem hataði það ekki og það var hann
nafni minn og lærisveinn Teits Þórðarsonar, hann Kristinn Jóhannes
Magnússon sem hér með verður kallaður Kiddi "léttur vindur" eða
Kiddi "gola".
Eftir þetta hélt fólk áfram að drekka og nýja stjórnin hellti í
glösin, fólk dansaði og bla bla bla, fór niðrí bæ og þar höfum við
það.

Föstudagurinn langi, hann byrjaði með því að leið okkar átti að
liggja í party til Gulla þar sem samkvæmt Davíð Erni Guðnasyni átti
að vera party til að fagna heimkomu þeirra hjóna. En þeir eru búnir
að búa hamingjusamir saman í Florida núna í marga marga mánuði (það
er að segja þangað til að þeir komu heim, þú skilur). Svo þegar
líða tekur á kvöldið og maður gerir sig tilbúinn að leggja af stað
þá fær maður símtal þess efnis, að það sé ekkert party hjá Gulla og
enn fremur að Gulli hafi aldrei verið búinn að segjast ætla halda
neitt party. Þessir helstu spekingar vilja meina að þarna hafi
Davíð verið of lengi í Florida sólinni og fengið svokallaðan
"sólsting". Þakka þeir guði fyrir að Davíð sé loks kominn heim og
sé kominn á staðinn þar sem hann á heim, atvinnulaus að spila XBOX
360.
Nú voru góð ráð dýr og var farið í það að redda einhverju
skemmtilegu og enduðum ég og Þórarinn Hauksson, áður þekktur sem
Tazmaníu Tóti, í Nintendo Wii party-i með bróðir hans Tóta og
félögum hans. (Segið þessa næstu setningu eins og þið séuð gaurinn
í Vörutorginu á S1) Óhætt er að segja að þetta tæki sé mikil snilld
og að geta spilað tennis, keilu og ja bara hvað sem er, einungis
með því að hreyfa hendurnar eins og vitleysingur er algjör snilld.
Vinsælasti leikurinn var samt án alls efa, hver er fljótastur að
mjólka kúnna? En þar þurfti maður að hreyfa hendurnar eins hratt
upp og niður og fylla þrjár fötur af mjólk. Þess má einmitt geta að
Hlynur bróðir hans Tóta er meistari í þessum leik og hefur
greinilega strokkað spennann þó nokkrum sinnum um ævina.
Eftir þetta Wii party var haldið á vit ævintýranna og kíkt á
Fjölnisveg þar sem meðlimir dansklúbbsins Jón Árni er frábær, og
einnig fleira fólk var saman komið. Það helsta sem gerðist þar er
að það var einstaklega gaman, Jón og Sólstings Davíð fóru í
bjórslag og það var stolinn af mér Opal peli. Við skulum nú ekki
gleyma að einn af the party goers, enduðu á stað þar sem ekki
margir hafa komið. Sögur segja að þegar þú kemst á þennn stað þá
mæta þér regnbogar og dúfur. Þetta hefur ekki fengist staðfest.

Það var einnig eftirminnilegt þegar Þórarinn Hauksson ákvað
daginn eftir að semi æla úr hlátri á KFC.
Meira var það ekki að sinni, ég get ekki beðið eftir 15.mai
(eftir kl 17 þeas).
*drykkjuleikur sem felst í því að þú átt alltaf að drekka með
öfugri hönd, rétthentir drekka með vinstri og öfugt. Svo þegar
einhver verður vitni að því að leikmaður brýtur reglurnar þá byrjar
þú að syngja/öskra buffaló lagið. En það hljómar einhvern veginn
svona: Buffaló buffaló buffaló.... buffaló buffaló buffalóóóóó...
Buffaló buffaló buffaló BUFFALOOÓÓ BUFFALÓ. Þið kannist við
þetta.
»
28.03.2007 00:40:22 / kiddi
Ég fékk símtal í morgun, það var hún Sigríður á skrifstofunni á
Bækistöð 4 (B4). Hún var að láta mig vita að ég væri kominn með
"vinnu" þar. Það lítur allt út fyrir að maður snoði gras og þrykki
í plast enn eitt sumarið..... Fyrirgefiði þetta var ekki alveg rétt
hjá mér, það lýtur allt út fyrir að ég sitji inni í bíl og tjilli
meðan ég segi öðrum að fara út að snoða gras og þrykkja í plast.
Nema það sé gott veður, þá gæti verið að maður taki til
hendinni.
Ég mæli eindregið með því að fólk sæki um þarna, auðveld vinna
fyrir góðan pening.
Það lítur allt út fyrir að maður verði edrú á föstudaginn, það
er nefnilega aðalfundur Vélarinnar þar sem það er boðið upp á
ógeðslega mikið frítt áfengi allt kvöldið. Og fólk mun ekki hætta
fyrr en Dionysus, barþjóninn, er búinn með birgðir sínar. Spurning
hvort að Dansklúbburinn Jón Árni er frábær, taki snúning um kvöldið
en það var einmitt fyrsti fundur hjá klúbbnum um seinustu helgi og
samkvæmt óstaðfestum fregnum þá var dansað til að gleyma. Annars
man ég það ekki.
»
26.03.2007 05:35:15 / kiddi
Einmitt...
»
Síður: 1 2 3 ... 19
|
|